Um |
Haas VERKSMIÐJU ÚTIBÚVið erum þjónustu- og söluaðilar fyrir HAAS Automation,Inc., stærsta vélaframleiðanda í Bandaríkjunum. HAAS Automation framleiðir breiða línu af CNC - Tölvustýrðum fræsivélum og rennibekkjum ásamt deiliborðum. Fyrirtækið framleiðir einnig ýmsar sérhæfðar vélar, 5 ása fræsistöðvar, mótasmíðavélar, verkstæðisvélar og fræsara með stóru borði og gálgafærslu. Vélarnar frá HAAS Automation eru hágæða framleiðsla, skila mikilli endurtekningarnákvæmni og eru einstaklega áreiðanlegar og endingargóðar - eru þar með bestu kaupin á CNC vélamarkaðnum í dag. . HAAS Verksmiðju útibú (Haas Factory Outlet) er ekki aðeins skilgreint af hágæða vélum frá HAAS, heldur einnig framúrskarandi viðhalds, tækniþjónustu og kennslu í notkun vélanna. Þar sem við erum þjónustuaðilar, sem eru beintengdir við verksmiðjuna, höfum við aðgang að viðamiklum varahlutalager til afhendingar samstundis af okkar eigin lager, eða 24 tíma afgreiðslu af miðlager. Tæknimenn okkar eru þjálfaðir á sérhæfðum námskeiðum í meðferð HAAS véla og eru hluti af þjálfunarkerfi HAAS, sem er með stöðug námskeið í nýjustu tækni og nýjustu gerðum af vélum. Með auknum fjölda HAAS véla á íslandi er þekking á notkun og möguleikum HAAS CNC véla sífellt að aukast, verða almennari og til góða fyrir viðskiptavini okkar. HAAS Verksmiðju Útibú, deild hjá IÐNVÉLUM ehf, var stofnuð til að bjóða HAAS Automation CNC - Tölvustýrðar vélar á ykkar svæði. Þetta útibú, er með kynningu á HAAS vélum, býður upp á þjálfun, þjónustu og ráðgjöf til að þið náið árangri. . Staðsetning![]() Haas Verksmiðju Útibú - Deildir:
|
Allur réttur áskilinn. Smiðjuvegi 44-46, 200 Kópavogur - S 414 2700 |